Eins og fram hefur komið á Matarvef mbl.is stendur yfir heimsmeistaramót ungra bakara á Íslandi og er það í fyrsta skipti sem mótið er haldið hér á landi. Mikið er um dýrðir í keppninni sem haldin er í Hótel- og matvælaskólanum í Kópavogi og alls taka sjö lönd þátt: Ísland, Þýskaland, Frakkland, Svíþjóð, Spánn, Ungverjaland og Kína.

Í tilefni heimsmeistaramótsins bauð Eliza Reid forsetafrú keppendum og aðstandendum þeirra til móttöku á Bessastöðum. Í tilefni þessa færðu keppendur Íslands, Stefanía Malen Guðmundsdóttir og Hekla Guðrún Þrastardóttir Elizu forsetafrú gullfallegar kökur. Annars vegar kransaköku skreytta með súkkulaði, sem Guðbjörg Ósk Gunnarsdóttir nýútskrifaður bakarí gerði og hins vegar fallega rauða tertu, ástarblómið, sem Finnur Guðberg Ívarsson nýútskrifaður bakari gerði sérstaklega handa forsetahjónunum.
Eliza var hugfangin af kökunum sem henni voru færðar og útgeislun ungu bakarana sem mættu á Bessastaði. Keppendur voru að skoða þennan merka stað og njóta gestrisni forsetafrúarinnar áður en keppni hófst á nýja leik. Var það mikil upplifun fyrir ungu bakarana að heimsækja Bessastaði og hitta forsetafrúna, sem sýndi mikinn áhuga á starfi þeirra og hæfileikum.
Einnig færði Sigurður Már Guðjónsson, formaður LABAK, Elizu Reid forsetafrú viðurkenningarskjal og gullmedalíu frá Landssambandi bakarameistara.
Heimsmeistaramótið hefur verið haldið síðan árið 1971, fyrst í Berlín í Þýskalandi. Upphaflega voru keppendur fáir, en eftir því sem árin hafa liðið hafa fleiri og fleiri lönd sent þátttakendur til að taka þátt í þessari spennandi keppni. Keppnin hefur gengið undir nafninu heimsmeistarakeppni ungra bakara.