Fá ágæt verð á mörkuðum

Strandveiðar | 5. júní 2024

Fá ágæt verð á mörkuðum

Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum landsins þetta strandveiðitímabil ætlar að verða ágætt, að minnsta kosti miðað við fyrstu 26 söludaga frá og með 2. maí síðastliðnum.

Fá ágæt verð á mörkuðum

Strandveiðar | 5. júní 2024

Strandveiðisjómenn geta verið ánægðir með verð á mörkuðum en í …
Strandveiðisjómenn geta verið ánægðir með verð á mörkuðum en í gær var meðalverð á slægðum þorski á fiskmörkuðum um 649 krónur á kíló. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum landsins þetta strandveiðitímabil ætlar að verða ágætt, að minnsta kosti miðað við fyrstu 26 söludaga frá og með 2. maí síðastliðnum.

Meðalverð á þorski á fiskmörkuðum landsins þetta strandveiðitímabil ætlar að verða ágætt, að minnsta kosti miðað við fyrstu 26 söludaga frá og með 2. maí síðastliðnum.

Verð á slægðum þorski var töluvert lægra á fyrsta degi strandveiða í ár borið saman við meðalverð á mörkuðum sama dag á síðasta ári en þó aðeins hætti en árið 2022. Verð hækkaði hins vegar ört og hefur verið á slægðum þorski verið að jafnaði hærra frá upphafi strandveiða fram í byrjun júní en á sama tímabili undanfarin tvö ár og náði meðalverð rúmlega 649 krónum í gær.

Ef litið er til óslægðs þorsks hefur meðalverð ekki verið sérlega hátt og er nærri meðaltali síðustu tveggja ára, að tveimur síðustu söludögum undanteknum þegar verð hefur verið um 527 krónur.

Veðurfarið undanfarið hefur líklega haft áhrif á framboð þorsks á mörkuðum og ýtt undir verðhækkun. Einnig er vert að geta þess að fjölmargir bátar með kvóta hafa klárað sínar heimildir.

mbl.is