Í ræðu sem Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands, hélt á heimili sínu á Kársnesi þegar hún bauð sig fram til embættis forseta Íslands í fyrsta sinn árið 2016, sagðist hún vera af þeirri lánsömu kynslóð sem orðið hefði fyrir djúpum áhrifum af forsetatíð Vigdísar.

„Myndin af henni á svölum síns heimilis, í heimaprjónuðum kjól með unga dóttur sína sér við hlið, hefur alla tíð verið ljóslifandi í mínum huga og verið mér eins og öllum af okkar kynslóð mikil hvatning,“ sagði Halla í ræðu sinni.
Á mánudag birtist frétt á mbl.is með fyrirsögninni „Veifandi Vigdís heima hjá Höllu“. Í fréttinni segir frá því að í stofunni heima hjá Höllu sé umrædd ljósmynd af Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta. Halla hefur því sannarlega haldið fast í þessa fyrirmynd sína á undanförnum árum.
Þetta var þó einungis byrjunin á framboðsræðu Höllu þetta árið og því margt annað sem hún lagði áherslu á sem svipar til þeirra áhersluþátta sem hún hafði í núverandi baráttu.
„Ég held að tími sé kominn til að skoða grunngildi okkar og ræða þau, því það er vondur staður sem við erum komin á, þegar aðeins einn af hverjum tíu treystir stjórnvöldum. Þetta er brostið traust og afleiðing af því sem hér gerðist,“ sagði Halla árið 2016 og vísaði til hrunsins.
„Við erum búin að sinna efnahagslegu verkefnunum nokkuð vel en tilfinningakreppa okkar, og sárið sem varð til í samfélagssáttmálanum, þau eru enn þá til staðar. Ég held að næsta verkefni sé að sinna því svo unga fólkið okkar vilji búa hér.“
Eins og fram kemur hér á undan sagði Halla næsta verkefni, á þeim tíma, að sinna sárinu sem varð til í samfélagssáttmálanum árin á undan til að unga fólkið myndi vilja búa á Íslandi.
Halla lagði að sama skapi ríka áherslu á unga fólkið í núverandi baráttu og sagðist ungt fólk sem studdi Höllu til embættisins vona að hún myndi ná að draga úr skautun í íslensku samfélagi í sinni valdatíð.
„Ég vil gera gagn og láta gott af mér leiða,“ sagði Halla árið 2016 og lýsti áhyggjum sínum yfir því að almennt hugsuðu það of fáir.
„Bæði vegna þess að það er ákveðin áhætta, að stökkva út og segja það, í samfélagi þar sem umræðan er kannski ekki alltaf á jákvæðum nótum,“ sagði Halla sem enn leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að umræðan í samfélaginu sé á jákvæðum nótum.
„Ég tel að sá sem sitji á Bessastöðum þurfi að fara fyrir vilja allrar þjóðarinnar, ekki einhverjum einstökum hugmyndafræðilegum skoðunum sem kannski verða of rótgrónar ef maður hefur starfað á sviði stjórnmála,“ sagði Halla árið 2016.