Einkaþjálfarinn Margrét Gnarr deildi því með fylgjendum sínum á Instagram í gær að hún hafi verið án áfengis í sex ár.

Í tilefni þess birti Margrét mynd af sér og syni hennar, en þau eru bæði með sex fingur á lofti og brosa út að eyrum. „6 ára edrú í dag. Hamingjusöm, glöð & frjáls,“ skrifaði Margrét við myndina.
Nýverið opnaði Margrét sig um baráttuna við átröskun og vímuefnavanda í hlaðvarpsþættinum Sterk saman, en hún sagði frá ferlinum í fitness og hvernig hann samtvinnaðist við anorexíu, búlemíu og alkahólisma.
„Ég fór á djammið á Spáni með bróður mínum, hann keypti bjór og sagði „þú tekur næsta“ og ég hugsaði: „Ókei það virkar þá svoleiðis.“ Hann keypti svo aftur og ég sagði: „Má ég fá þriðja?“ Ég hafði áður bara drukkið tvo og hélt að það væri bara þannig en eftir þetta skipti voru ófá skipti sem enduðu í „blackouti“,“ útskýrði Margrét í þættinum.