Kallar eftir einbeittri markaðsherferð

Ferðamenn á Íslandi | 7. júní 2024

Kallar eftir einbeittri markaðsherferð

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nýtt eldgos hafi neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu.

Kallar eftir einbeittri markaðsherferð

Ferðamenn á Íslandi | 7. júní 2024

Skógarfoss.
Skógarfoss. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nýtt eldgos hafi neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að nýtt eldgos hafi neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu.

Ferðamenn hafi í sífellu afbókað ferðir til landsins meðal annars vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga.

Í lok síðasta árs sagði Jóhannes Þór að ýktur fréttaflutningur erlendra miðla væri meðal skýringa á þessu.

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Erfitt að stýra umfjöllun miðla

Spurður hvort hann hafi orðið var við breytingar á fréttaflutningi erlendis eftir að nýtt eldgos hófst við Sundhnúkagígaröðina segir hann að erfitt sé að stýra umfjöllun í stórum erlendum miðlum á borð við BBC og Sky News.

Jóhannes Þór kallar eftir að ráðist verði í einbeitta markaðsherferð til að fjölga ferðamönnum sem sækja Ísland heim. Það sé besta leiðin til að hafa áhrif á neytendur og sýna þeim hvað sé í raun og veru að gerast hér á landi.

mbl.is