Klæddir sjóstökkum í kröfugöngu

Strandveiðar | 7. júní 2024

Klæddir sjóstökkum í kröfugöngu

Hátt í 100 manns, margir klæddir sjóstökkum, taka þátt í göngu frá Hörpu að Austurvelli þar sem Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra verður afhent kröfubréf.

Klæddir sjóstökkum í kröfugöngu

Strandveiðar | 7. júní 2024

Margir eru klæddir sjóstökkum í kröfugöngunni.
Margir eru klæddir sjóstökkum í kröfugöngunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hátt í 100 manns, margir klæddir sjóstökkum, taka þátt í göngu frá Hörpu að Austurvelli þar sem Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra verður afhent kröfubréf.

Hátt í 100 manns, margir klæddir sjóstökkum, taka þátt í göngu frá Hörpu að Austurvelli þar sem Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra verður afhent kröfubréf.

Þess er krafist að strandveiðibátar fái að stunda veiðar allt strandveiðitímabilið, en viðmiðið er 12 dagar í maí, júní, júlí og ágúst.

Á leið á Austurvöll.
Á leið á Austurvöll. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Að sögn blaðamanns mbl.is á staðnum hélt Kjartan Páll Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands, ræðu við Hörpu þar sem sagði að Bjarkey hefði lofað því að hitta þau á Austurvelli.

Að ræðunni lokinni hélt hópurinn af stað í kröfugönguna. 

Kjartan Páll ásamt Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir utan Alþingi.
Kjartan Páll ásamt Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir utan Alþingi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is