Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, ætlar að gera aðra tilraun til að halda útgáfutónleika fyrir nýju plötuna sína PBT 2.0 í dag klukkan 20:00 á Reykjavíkurhöfn. Tónleikarnir áttu upprunalega að fara fram þann 31. maí en kraftmikil vorlægð varð boðflenna og því þurfti Patrik að fresta tónleikaveislunni.

Patrik gaf út plötuna fyrir tveimur vikum síðan en hún hefur fengið frábærar viðtökur. Um er að ræða níu laga skífu þar sem meðal annars tónlistarkonan Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir, oftast kölluð Gugusar, syngur með Patrik í laginu Horfir á mig.
Patrik býður öllum gestum ókeypis á tónleikana en þeir munu fara fram hjá hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu. Svo virðist sem Patrik muni spila á skipi á tónleikunum og því munu áhorfendur geta notið sjónarspilsins og dansað við tónlistina á bryggjunni.
Einnig heldur Patrik útgáfutónleika í Kaupmannahöfn þann 21. júní en tóleikagestir þar fá líka að njóta tónlistarinnar að kostnaðarlausu.
Patrik lofar betra veðri í kvöld en 31. maí og búast má við skrautlegum tónleikum hjá honum.