Óskar Finnsson hlaut Cordon Blue orðuna

Klúbbur matreiðslumeistara | 10. júní 2024

Óskar Finnsson hlaut Cordon Blue orðuna

Á árshátíð Klúbbs matreiðslumeistara sem haldin var á dögunum var Óskari Finnssyni matreiðslumeistara og veitingamanni veit Cordon Blue orða Klúbbs matreiðslumeistara en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.

Óskar Finnsson hlaut Cordon Blue orðuna

Klúbbur matreiðslumeistara | 10. júní 2024

Bjarki Ingþór Hilmarsson formaður orðunefndar, Óskar Finnsson og Þórir Erlingsson …
Bjarki Ingþór Hilmarsson formaður orðunefndar, Óskar Finnsson og Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara. Ljósmynd/Klúbbur matreiðslumeistara

Á árshátíð Klúbbs matreiðslumeistara sem haldin var á dögunum var Óskari Finnssyni matreiðslumeistara og veitingamanni veit Cordon Blue orða Klúbbs matreiðslumeistara en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.

Á árshátíð Klúbbs matreiðslumeistara sem haldin var á dögunum var Óskari Finnssyni matreiðslumeistara og veitingamanni veit Cordon Blue orða Klúbbs matreiðslumeistara en orðan er veitt þeim sem sýnt hafa fram á framúrskarandi starf í þágu matreiðslufagsins.

„Óskar er snilldarkokkur og auk þess að vera veitingamaður af lífi og sál. Áhugi Óskars og þekking á veitingahúsum og mat er aðdáunarverður og er leitun að manni sem hefur borðað á fleiri veitingastöðum út um allan heim. Óskar hefur svo sannarlega haft áhrif á íslenska veitingamennsku með fagmennsku sinni og smekkvísi,“ segir Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara þegar hann lýsir mannkostum Óskars.

Landsþekktur fyrir störf sín

Óskar er fyrir löngu orðin landsþekktur fyrir störf sín í veitingageiranum, sjónvarpsþætti, útvarpsþætti og greinar um veitingageirann í fjölmiðlum og á netinu. Óskar er ættaður frá Seyðisfirði en kom ungur til Reykjavíkur og lærði matreiðslu á Aski undir stjórn meistara síns, Guðmundar Valtýssonar. Með fram náminu starfaði hann á Hótel Sögu, Þrem frökkum og fleiri stöðum. Að námi loknu hoppaði Óskar beint í djúpu laugina þegar honum bauðst staða yfirkokks á Hótel Valhöll. Þá var honum var boðin vinna á steikhúsi nokkru við Barónsstíg sem þá var um það bil að opna og var ákveðið að staðurinn fengi nafnið Argentína. Óskar er ennþá þekktur sem Óskar á Argentínu. Á Argentínu starfaði Óskar fram til ársins 2004 þegar fjölskyldan flutti til Bretlands. Þar kom Óskar að opnun Texture með Agnari Sverrissyni. Það reyndist verða fyrsti Michelin-staðurinn með íslenskar rætur.

Fjölskyldan með Finnsson Bistro

Auk þess hefur Óskar komið að opnun nokkurra staða.  Má þar nefna Carpe Diem, Veisluturninn og Gott svo eitthvað sé nefnt. Þá starfaði Óskar sem framkvæmdastjóri veitingasviðs Íslandshótela áður en þau fjölskyldan opnuðu Finnsson Bistro í Kringlunni sem þau eiga og reka í dag og nýtur mikilla vinsælda

Óskar Finnsson er vel þekktur í veitingageiranum og rekur í …
Óskar Finnsson er vel þekktur í veitingageiranum og rekur í dag Finnsson Bistro með fjölskyldu sinni. Ljósmynd/Klúbbur matreiðslumeistara
mbl.is