„Algjör tímaskekkja í nútímasamfélagi“

Hvalveiðar | 11. júní 2024

„Algjör tímaskekkja í nútímasamfélagi“

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) harmar og lýsir vonbrigðum með þá ákvörðun matvælaráðherra að heimila hvalveiðar í sumar.

„Algjör tímaskekkja í nútímasamfélagi“

Hvalveiðar | 11. júní 2024

Dýraverndarsamband Íslands ítrekar þá kröfu sambandsins að hin löngu úreltu …
Dýraverndarsamband Íslands ítrekar þá kröfu sambandsins að hin löngu úreltu lög um hvalveiðar verði afnumin eða þeim breytt verulega til nútímahorfs hið allra fyrsta. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) harmar og lýsir vonbrigðum með þá ákvörðun matvælaráðherra að heimila hvalveiðar í sumar.

Stjórn Dýraverndarsambands Íslands (DÍS) harmar og lýsir vonbrigðum með þá ákvörðun matvælaráðherra að heimila hvalveiðar í sumar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu.  

Svartur dagur

Dýraverndarsamband Íslands ítrekar þá áður fram komnu kröfu sambandsins „að hin löngu úreltu lög um hvalveiðar verði afnumin eða þeim breytt verulega til nútímahorfs hið allra fyrsta. Fyrir liggur afstaða Matvælastofnunar og fagráðs um velferð dýra að veiðarnar séu ýmist ekki í anda laga um dýravelferð né að unnt sé að veiða stórhvali þannig að ákvæði laga um dýravelferð séu yfirleitt uppfyllt. 

Hvalveiðar eru algjör tímaskekkja í nútímasamfélagi enda eru veiðar á stórhvölum aðeins stundaðar í einu ríki í heiminum og það af einu fyrirtæki sem heitir Hvalur hf. Þótt það sé í sjálfu sér jákvæð breyting að ekki sé veitt leyfi lengur en til eins árs í stað fimm áður og að veiðikvótinn sé minnkaður umtalsvert þá er þetta engu að síður svartur dagur fyrir dýravelferð á Íslandi,“ segir í yfirlýsingunni.  

Lögum verði breytt án tafar

„Dýraverndarsamband Íslands skorar á stjórnvöld og Alþingi að ganga nú án tafar í það nauðsynlega verkefni að afnema eða breyta í grundvallaratriðum lögum um hvalveiðar þannig að þessar ómannúðlegu veiðar heyri sögunni til hið allra fyrsta,“ segir enn fremur. 

mbl.is