Í gær tilkynnti Charles Spencer, bróðir Díönu prinsessu, að hann væri að skilja frá eiginkonu sinni Kareni Gordon eftir 13 ára hjónaband.

Greint var frá því í The Times að Spencer hafi ráðið sama skilnaðarlögfræðing, Fiönu Shackleton, og fyrrverandi mágur hans, Karl Bretakonungur, notaði í bitrum skilnaði hans frá Díönu árið 1996. Shackleton var einnig fulltrúi Andrésar prins í skilnaði hans frá Söru Ferguson sama ár.
Þá hefur Shackleton einnig starfað fyrir utan konunglega ríkið, en hún vann einnig fyrir Sir Paul McCartney í skilnaði hans frá Heather Mills, og Madonnu í skilnaði hennar frá Guy Ritchie í kringum aldamótin.
Það kostar sitt að ráða Shackleton, en hún er sögð kosta Spencer 700 bandaríkjadali á klukkustund, eða sem nemur tæplega 98 þúsund krónum á gengi dagsins í dag.