Hvorki vinstri né græn: „Auðvaldsmottur og umhverfissóðar“

Hvalveiðar | 11. júní 2024

Hvorki vinstri né græn: „Auðvaldsmottur og umhverfissóðar“

Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem skáldið Sjón, fer hörðum orðum um Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og Vinstri græn í færslu á miðlinum X.

Hvorki vinstri né græn: „Auðvaldsmottur og umhverfissóðar“

Hvalveiðar | 11. júní 2024

Sigurjón Birgir Sigurðsson fer hörðum orðum um Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur …
Sigurjón Birgir Sigurðsson fer hörðum orðum um Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og hennar flokk. Samsett mynd

Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem skáldið Sjón, fer hörðum orðum um Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og Vinstri græn í færslu á miðlinum X.

Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem skáldið Sjón, fer hörðum orðum um Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra og Vinstri græn í færslu á miðlinum X.

„Matvælaráðherra Bjarkey Olsen skríður fyrir Sjálfstæðisflokknum og leyfir hinar viðbjóðslegu hvalveiðar að nýju. Hún og flokkur hennar „Vinstri græn“ eru hvorki vinstri né græn. Þau eru auðvaldsmottur og umhverfissóðar. Megi þau þurrkast út í næstu kosningum,“ segir í færslunni.

Bjarkey tilkynnti í dag að hún hygðist gefa út leyfi til hvalveiða til eins árs. Hún hafði lengi legið undir feldi til að gera upp hug sinn áður en ákvörðunin var endanlega tekin.

Einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki hafa ýmist skorað á hana að heimila ekki hvalveiðar í sumar eða gera hið gagnstæða.

mbl.is