Jón orðlaus yfir ósvífni ráðherra

Hvalveiðar | 11. júní 2024

Jón orðlaus yfir ósvífni ráðherra

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst vera orðlaus yfir ósvífni Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra gagnvart starfsfólki og fyrirtæki Hvals, en Bjarkey greindi frá því fyrr í dag að hún hefði gefið út leyfi til hval­veiða í sumar.

Jón orðlaus yfir ósvífni ráðherra

Hvalveiðar | 11. júní 2024

Jón Gunnarsson er ekki sáttur við vinnubrögð Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur.
Jón Gunnarsson er ekki sáttur við vinnubrögð Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur. Samsett mynd/mbl.is/Óttar/Eggert

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst vera orðlaus yfir ósvífni Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra gagnvart starfsfólki og fyrirtæki Hvals, en Bjarkey greindi frá því fyrr í dag að hún hefði gefið út leyfi til hval­veiða í sumar.

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kveðst vera orðlaus yfir ósvífni Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra gagnvart starfsfólki og fyrirtæki Hvals, en Bjarkey greindi frá því fyrr í dag að hún hefði gefið út leyfi til hval­veiða í sumar.

Jón sagði á Alþingi í dag að Bjarkey hefði tilkynnt um sína ákvörðun allt of seint. 

„„Verð að fara að lögum í landinu,“ er haft eftir henni í fjölmiðlum í dag. Hún hefði mátt gera sér grein fyrir því fyrr en það er nauðsynlegt,“ sagði Jón. 

Hann bætti við, að það blasi við að málsmeðferðin hafi engan veginn verið í samræmi við lög eða stjórnarskrá landsins.

Sögufölsun

„Rökin sem hæstvirtur ráðherra færir fyrir langdreginni málsmeðferð sinni standast enga skoðun. Hún segir vitnað til þess að 2019 hafi hvalveiðileyfi verið gefið út í júlí. Þá var ekkert starfsleyfi í gildi fyrir verksmiðjuna og stóð ekki til að fara á veiðar. Þannig að þetta er auðvitað bara sögufölsun.“

Jón bætti við að baráttan við MAST um starfsleyfi fyrir verksmiðjuna hefði tekið þrjú ár, sem væri enn eitt dæmi um stjórnsýslu sem væri ekki til fyrirmyndar. Þá hefði loksins verið veitt varanlegt starfsleyfi.

Hunsar vísindamenn

„Ráðherra beitir síðan varfærinni, eins og hún kallar það, reiknireglu. Hún hunsar vísindamenn Hafrannsóknastofnunar. Hún notar reiknireglu sem enginn annar notar, ekki meðal þjóða sem við erum í samstarfi við í Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðinu,“ sagði Jón.

„Maður er, virðulegur forseti, orðlaus yfir ósvífni ráðherrans gagnvart starfsfólki og fyrirtæki í þessu tilfelli. Það er allt gert, að því er virðist, af geðþótta og lítilli eða engri virðingu fyrir fólki, lögum eða stjórnarskrá. Slík stjórnsýsla, virðulegur forseti, er ólíðandi. Þetta er ólíðandi misbeiting á valdi sem ráðherra hefur.“

mbl.is