Arnarlax leiðréttir ummæli Gísla Rafns

Fiskeldi | 12. júní 2024

Arnarlax leiðréttir ummæli Gísla Rafns

Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax segist aldrei hafa greitt út arð í 15 ára sögu fyrirtækisins.

Arnarlax leiðréttir ummæli Gísla Rafns

Fiskeldi | 12. júní 2024

Gísli fór með rangt mál í pontu á Alþingi, að …
Gísli fór með rangt mál í pontu á Alþingi, að sögn Arnarlax. Samsett mynd

Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax segist aldrei hafa greitt út arð í 15 ára sögu fyrirtækisins.

Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax segist aldrei hafa greitt út arð í 15 ára sögu fyrirtækisins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu. Þar segir að af orðum Gísla Rafns Ólafssonar, þingmanns Pírata, í ræðu sem hann flutti á Alþingi á mánudag mætti skilja að Arnarlax hafi greitt út mikinn arð.

„Reyndar kom fram hjá þingmanninum á einum stað í ræðu hans að hann átti þarna við stærsta hluthafann í Arnarlaxi, sem er áratugagamalt norskt fiskeldisfyrirtæki sem gengur afar vel. Hins vegar eignaði hann svo Arnarlaxi arðgreiðslurnar skömmu síðar í sömu ræðu og það gerði matvælaráðherra einnig í svörum við ræðu þingmannsins,“ skrifar fyrirtækið.

Eins og ef Icelandair gerðist ábyrgt um arðgreiðslur Bain Capital

Þarna hafi Gísli Rafn ekki gert greinarmun á stórum hluthafa og hinu íslenska fyrirtæki.

„Þetta væri svipað því og ef Icelandair yrði gert ábyrgt fyrir arðgreiðslum Bain Capital, sem er stærsti hluthafinn í því mikilvæga fyrirtæki okkar Íslendinga.“

Arnarlax segist vera með hundruð hluthafa, bæði íslenska og erlenda. Flestir þeirra séu sjóðir sem leggja fé í atvinnustarfsemi í þeirri von að hún gangi vel og geti skilað sparifjáreigendum sem greitt hafa í sjóðina, ávöxtun til langs tíma.

Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax að vinnu.
Starfsmenn fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax að vinnu. Ljósmynd/Aðsend

Þingmenn haldi fram „röngum staðreyndum“

Fiskeldisfyrirtækið tekur fram að atvinnugreinin sé „umhverfisvæn“ í ýmsum skilningi en því miður hafi komið upp „alvarlegar slysasleppingar“ hjá sér og öðrum fiskeldisfyrirtækjum.

Atvinnugreinin sé umhverfisvæn grein í þeim skilningi að kolefnisspor við framleiðslu á laxi er lítið og varan heilnæmur prótíngjafi í heimi þar sem þörf er á að auka umhverfisvæna matvælaframleiðslu.

„Það hafa því miður komið upp alvarleg slysasleppingarmál hjá bæði okkur hjá Arnarlaxi og öðrum sem rækta fisk í sjókvíum hér við land. Það er skiljanlegt að Alþingi vilji setja skýrari lagaramma um starfsemi þessarar atvinnugreinar og skapa sem mestan hvata fyrir fyrirtækin að vanda til verka,“ segir í yfirlýsingunni.

„Arnarlax vill vinna í sátt við samfélagið og byggja upp traust til greinarinnar. Þar skiptir líka máli að þingmenn og ráðherrar séu vel upplýstir og haldi ekki fram röngum staðreyndum um íslensku fyrirtækin í greininni.“

mbl.is