Flestir ánægðir með Höllu

Forsetakosningar 2024 | 12. júní 2024

Flestir ánægðir með Höllu

Konur eru ánægðari með Höllu Tómasdóttur, nýkjörinn forseta, heldur en karlar. Íbúar nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur og landsbyggðarinnar eru einnig ánægðari með forsetann en íbúar Reykjavíkur.

Flestir ánægðir með Höllu

Forsetakosningar 2024 | 12. júní 2024

Meirihluti þjóðar kveðst ánægður með kjör Höllu Tómasdóttur til forsetaembættisins.
Meirihluti þjóðar kveðst ánægður með kjör Höllu Tómasdóttur til forsetaembættisins. mbl.is/Kristinn Magnússon

Konur eru ánægðari með Höllu Tómasdóttur, nýkjörinn forseta, heldur en karlar. Íbúar nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur og landsbyggðarinnar eru einnig ánægðari með forsetann en íbúar Reykjavíkur.

Konur eru ánægðari með Höllu Tómasdóttur, nýkjörinn forseta, heldur en karlar. Íbúar nágrannasveitarfélaga Reykjavíkur og landsbyggðarinnar eru einnig ánægðari með forsetann en íbúar Reykjavíkur.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Prósents, þar sem 63% svarenda segjast ánægðir með að Halla Tómasdóttir hafi verið kjörin forseti Íslands, 24% segjast hvorki ánægðir né óánægðir og 13% segjast óánægðir.

Auk þess eru þau sem kusu Höllu Tómasdóttur, Höllu Hrund Logadóttur og Baldur Þórhallsson ánægðari með forsetann en þau sem kusu Katrínu Jakobsdóttur eða Jón Gnarr.

mbl.is