Söng- og leikkonan, Halle Bailey, og rapparinn Darryl Dwayne Granberry Jr., betur þekktur undir listamannsnafninu DDG, héldu sig algjörlega frá sviðsljósinu á meðan meðgöngu sonar þeirra stóð.

Drengurinn þeirra, sem hefur fengið nafnið Halo, kom í heiminn fyrir rúmlega fimm mánuðum. Parið hefur nú tilkynnt að þau hafi að mestu haldið sig uppi í sveit þar sem frumburðurinn fæddist.
Bailey hefur undanfarin ár lagt mikið upp úr því að halda einkalífinu út af fyrir sig en aðdáendur leikkonunnar eru í skýjunum með að hún hafi nú loksins opnað sig, sérstaklega eftir að hafa haldið allri meðgöngu sinni leyndri.
Bailey og DDG hafa verið saman síðan 2022 og hefur hann staðið þétt upp við bakið á leikkonunni eftir að hún greindist fæðingarþunglyndi. Hún opnaði sig um andlegu veikindin nýlega en þar lýsir hún því hvernig hún reynir sitt besta svo hún „drukkni ekki í stærstu öldunum.“
Hvíldin frá sviðsljósinu er því skiljanleg en nýbökuðu foreldrarnir virðast þó njóta sín vel með unga syni sínum Halo.