Leikarinn Jesse Plemons ákvað að taka heilsuna í gegn fyrir hlutverk sitt í myndinni Civil War þar sem hann leikur hermann. Hann segir tímasetninguna á heilsuátakinu óheppilega þar sem margir í Hollywood eru á megrunarlyfi.

„Það er mjög óheppilegt að ég ákvað að taka heilsuna í gegn þegar allir ákváðu að taka Ozempic,“ sagði Plemons í viðtali við Los Agneles Times. Hann vísar þar til sykursýkis- og þyngdartapslyfsins Ozempic sem margar Hollywood-stjörnur hafa grennst á.
„Það skiptir ekki máli allir halda að ég sé hvort sem er á Ozempic,“ sagði Plemons. Hann segir ákvörðun sína tvíþætta. Hann var farinn að eldast auk þess sem hann hafi ekki getað ímyndað sér hermanninn sem hann átti að leika í því líkamlega atgervi sem hann var áður í.
„Nokkrir töluðu við mig um tímabundna föstu og ég prófaði það bara og það kom mér á óvart hversu vel það virkaði. Þannig ég léttist aðeins fyrir hlutverkið, þá leið mér eins og ég væri búinn að finna ákveðinn takt, mér leið betur og eitthvað hafði breyst. Ég bara náði þessu einhvern veginn,“ sagði Plemons um föstuna.