Björn um tillöguna: „Ég er grænni en rauðari“

Hvalveiðar | 18. júní 2024

Björn um tillöguna: „Ég er grænni en rauðari“

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að hann hallist að því að greiða atkvæði með vantrauststillögu Miðflokksins gegn Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Björn um tillöguna: „Ég er grænni en rauðari“

Hvalveiðar | 18. júní 2024

Björn Leví segir vantrauststillöguna vera byggða á málefnalegum grundvelli.
Björn Leví segir vantrauststillöguna vera byggða á málefnalegum grundvelli. Samsett mynd

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að hann hallist að því að greiða atkvæði með vantrauststillögu Miðflokksins gegn Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að hann hallist að því að greiða atkvæði með vantrauststillögu Miðflokksins gegn Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

„Ég er grænni en rauðari,“ segir Björn Leví í samtali við mbl.is.

Hann segir þingflokkinn eiga eftir að fara yfir vantrauststillöguna og gat því ekki sagt til um það hvað þingmenn Pírata muni gera þegar kosið verður um tillöguna.

Miðað við hefð má gera ráð fyrir því að atkvæðagreiðslan verði á morgun eða hinn.

Byggt á málefnalegum grundvelli

„Þetta er stjórnsýsluleg vantrauststillaga, miðað við uppleggið, og það er ansi margt á bak við þá tillögu. Þannig við komum til með að taka vel þátt í umræðunum og skoða málið út frá þeim vinkli, því hann er mjög málefnalegur,“ segir Björn Leví.

Hanna Katrín Friðriks­son, þing­flokks­formaður Viðreisn­ar, sagði í sam­tali við mbl.is fyrr í dag að óhætt væri að fullyrða að þing­menn Viðreisn­ar myndu greiða at­kvæði með tillögunni.

Miðflokk­ur­inn lagði fram til­lög­una í dag og var henni dreift til þing­manna við upp­hafi þing­fund­ar.

Ástæðan er fram­ganga henn­ar í hval­veiðimál­inu, en vegna óvenju langs tíma til leyf­is­veit­ing­ar af hálfu matvælaráðuneytisins stefn­ir allt í að eng­in vertíð verði hjá Hvali hf. í sum­ar.

mbl.is