Fæst kvótasetningin afgreidd?

Grásleppuveiðar | 18. júní 2024

Fæst kvótasetningin afgreidd?

Fjögur mál er snerta sjávarútveginn eru á dagskrá þingsins í dag en alls eru á dagskránni 32 mál. Óljóst er hver framvindan verður enda mörg málanna sem deilt verður um, einnig getur farið svo að skyndilega myndi skapast sátt um þinglok.

Fæst kvótasetningin afgreidd?

Grásleppuveiðar | 18. júní 2024

Önnur umræða um kvótasetningu grásleppu fer fram í dag samkvæmt …
Önnur umræða um kvótasetningu grásleppu fer fram í dag samkvæmt dagskrá. mbl.is/Hafþór

Fjögur mál er snerta sjávarútveginn eru á dagskrá þingsins í dag en alls eru á dagskránni 32 mál. Óljóst er hver framvindan verður enda mörg málanna sem deilt verður um, einnig getur farið svo að skyndilega myndi skapast sátt um þinglok.

Fjögur mál er snerta sjávarútveginn eru á dagskrá þingsins í dag en alls eru á dagskránni 32 mál. Óljóst er hver framvindan verður enda mörg málanna sem deilt verður um, einnig getur farið svo að skyndilega myndi skapast sátt um þinglok.

Gert er ráð fyrir að önnur umræða um kvótasetningu grásleppu verði til umræðu í dag, en tillaga þess efnis fékkst ekki afgreidd á síðasta þingi. Mikið hefur verið deilt um málið meðal þeirra sem telja kvótasetninguna forsendu þess að grásleppuveiðarnar verði arðbærari og öruggari og þeirra sem telja hana ógna nýliðun í greininni og atvinnufrelsi.

Þá er einnig á dagskrá framhald annarrar umræðu um frumvarp um breytingu á lögum um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna.

Með lagabreytingunum er ætlað að styrkja heimildir stofnunarinnar til að nálgast gögn Skattsins og Hagstofu Íslands sem á að auka gagnsæi fiskverðs og stytta málsmeðferð.

Dagskrá þingsins geriri ráð fyrir að önnur umræða um breytingar á hafnalögum fari fram í dag. Þar er gerð tillaga um ákvæði er snertir rafræna vöktun í höfnum, nýtt ákvæði um eldisgjald og lagt til að í hafnarreglugerð verði mælt fyrir um hafnarsvæði, nánar tiltekið þjónustusvæði á sjó sem teljast jafnframt vera mengunarlögsaga hafnarsvæða, hafnsögusvæða og hafnarsvæða farþegaskipa.

Síðasta mál á dagskrá þingsins er seinni umræða um rammasamkomulag milli Íslands og Grænlands um verndun loðnustofnsins og stjórnun veiða úr honum.

mbl.is