Óhætt er að fullyrða að þingmenn Viðreisnar muni greiða atkvæði með vantrauststillögu Miðflokksins á hendur Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Þetta segir Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, í samtali við mbl.is.
„Við höfum í sjálfu sér ekki fundað nákvæmlega um þessa tilteknu tillögu en ég held að mér sé óhætt að fullyrða það að við munum vera á græna takkanum,“ segir Hanna aðspurð.
Miðflokkurinn lagði fram tillöguna í dag og var henni dreift til þingmanna við upphafi þingfundar.
Ástæðan er framganga hennar í hvalveiðimálinu, en vegna óvenju langs tíma til leyfisveitingar af hálfu matvælaráðuneytisins stefnir allt í að engin vertíð verði hjá Hvali hf. í sumar.
„Þetta er stjórnsýsla sem gengur ekki og það gengur heldur ekki að stjórnvöld nái einhvern veginn að búa þá hefð til að við brot í starfi sé nóg að skipta bara út ráðherrum og þá sé málið dautt,“ segir Hanna.
Á undanförnum árum hefðu umræður og atkvæðagreiðsla farið fram einum eða tveimur sólarhringum eftir að vantrauststillaga er lögð fram.
„Það verður spennandi að sjá hvaða ráðherra þau draga upp úr hattinum næst,“ segir hún kímin.