Svo virðist sem miklir rigningardagar séu framundan um allt land og því tilvalið að nýta tímann í að gera heimilið notalegt. Á óskalista vikunnar finnur þú tíu hluti sem færa sumarstemninguna inn til þín og gleðja þig, jafnvel á dimmum rigningardögum!

Einhverjir hafa eflaust verið að bíða eftir því að komast út í garð og njóta flórunnar í góðu veðri, en samkvæmt veðurspánni eru litlar líkur á að það plan gangi eftir. Þú getur hins vegar alltaf dáðst af sumarlegum blómum í fallegum blómavasa inni hjá þér, en þessi vasi er íslensk hönnun eftir Önnu Þórunni Hauksdóttur og er afar formfagur.
Þó það sé lítil sól í kortunum þá getur þú treyst á að ilmandi kaffibolli hlýji þér. Þú getur svo bara lokað augunum á meðan þú drekkur kaffið og ímyndað þér að þú sitjir á litlu kaffihúsi við Amalfi-ströndina á Ítalíu. Svo skemmir ekki fyrir að kaffið komi úr fallegri sandlitaðri kaffivél, er það ekki eitthvað?
Til að skapa enn meiri sumarstemningu getur þú svo vafið þig inn í fagurblá rúmföt sem minna á heiðskýran himinn á góðum sumardegi á meðan þú drekkur morgunbollann!
Við Íslendingar erum algjörlega sjúk í sólina, enda erfitt að fá leið á henni þar sem hún lætur ekki sjá sig alltof oft yfir árið. Um helgina er að minnsta kosti hægt að vera með sól í hjarta og verið sjúkur í það!
Til að skapa meiri strandarstemningu á heimilinu er tilvalið að sækja innblástur þangað, til dæmis með því að bera fram kræsingar á þessum fallegu skeljadiskum sem eru íslensk hönnun eftir Heklu Nínu Hafliðadóttur.
Það er auðvelt að skapa suðrænni stemningu á heimilinu með fallegum grænum plöntum. Svo skemmir ekki fyrir að setja þær í fallegan pott, en þessi er afar sumarlegur og tónar fallega við græna litinn.
Það er fátt jafn sumarlegt og góð kókoslykt. Þetta ilmkerti tekur þig í ferðalag á sólríkar strendur þar sem kókoshnetur hanga í pálmatrjám og lífið virðist einfaldara!
Þú getur alltaf skapað góða stemningu með sumarlegum kokteilum sem eru bornir fram í fallegum glösum, hvort sem þú býður vinkonunum í „bröns“ eða heldur matarboð fyrir fjölskylduna um kvöldið. Svo má líka alveg blanda sér einn góðan, hvort sem hann er áfengur eða ekki, yfir daginn!
Mjúkar mottur bæta alltaf hlýlegri stemningu inn á heimilið. Í stað þess að stíga niður á kalt gólfið tekur við notaleg áferð og heldur á þér hlýju!
Það þarf oft ekki meira en sætar og sumarlegar skálar til að poppa upp á heimilið, en þessar eru með marokkósku mynstri og er litagleðin í forgrunni!