Björgvin kominn til Spánar

Samherji | 20. júní 2024

Björgvin kominn til Spánar

Björgvin EA-311, ísfisktogari Samherja, kom til hafnar í Vigo á Spáni í gærkvöldi eftir að hafa siglt þangað frá Dalvík. Björgvin lagði frá bryggju á Dalvík í síðasta sinn á mánudag og var töluverður fjöldi íbúa mættur til að kveðja skipið í síðasta sinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Björgvin kominn til Spánar

Samherji | 20. júní 2024

Björgvin kvaddi Dalvík á mánudag.
Björgvin kvaddi Dalvík á mánudag. mbl.is/Þorgeir

Björgvin EA-311, ísfisktogari Samherja, kom til hafnar í Vigo á Spáni í gærkvöldi eftir að hafa siglt þangað frá Dalvík. Björgvin lagði frá bryggju á Dalvík í síðasta sinn á mánudag og var töluverður fjöldi íbúa mættur til að kveðja skipið í síðasta sinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Björgvin EA-311, ísfisktogari Samherja, kom til hafnar í Vigo á Spáni í gærkvöldi eftir að hafa siglt þangað frá Dalvík. Björgvin lagði frá bryggju á Dalvík í síðasta sinn á mánudag og var töluverður fjöldi íbúa mættur til að kveðja skipið í síðasta sinn, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Fram kemur í færslu á vef Samherja að við síðustu brottför Björgvins EA slepptu þeir Leifur Björnsson og Hartmann Kristjánsson landfestum en þeir voru báðir í áhöfn skipsins í liðlega tuttugu ár. Þá sigldu nokkrir í áhöfn Björgvins EA með skipinu til Spánar ásamt tveimur Spánverjum. Skipstjóri á siglingunni var Björn Már Björnsson og fyrsti stýrimaður er Brynjólfur Oddsson.

Björgvin EA var elsta skip í flota Samherja og var smíðað af Flekkefjord slipp og maskinfabrikk AS í Noregi 1988. Um er að ræða 50,53 metra langan frysti- og ístogara sem er 12 metra breiður og mælist 1.142,22 brúttótonn.

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is