Jón sat á endanum hjá

Hvalveiðar | 20. júní 2024

Jón sat á endanum hjá

Jón Gunnarsson, stjórnarþingmaður úr Sjálfstæðisflokknum, sat hjá þegar þingheimur greiddi atkvæði um vantraust á hendur Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra.

Jón sat á endanum hjá

Hvalveiðar | 20. júní 2024

Jón Gunnarsson er ekki sáttur við vinnubrögð Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur.
Jón Gunnarsson er ekki sáttur við vinnubrögð Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur. Samsett mynd/mbl.is/Óttar/Eggert

Jón Gunnarsson, stjórnarþingmaður úr Sjálfstæðisflokknum, sat hjá þegar þingheimur greiddi atkvæði um vantraust á hendur Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra.

Jón Gunnarsson, stjórnarþingmaður úr Sjálfstæðisflokknum, sat hjá þegar þingheimur greiddi atkvæði um vantraust á hendur Bjarkeyju Olsen matvælaráðherra.

Bæði Jón og Óli Björn Kárason, sem báðir eru úr röðum Sjálfstæðisflokksins, hafa verið ósátt­ir við fram­ferði Bjarkeyj­ar í hval­veiðimál­inu. Óli greiddi aftur á móti atkvæði gegn vantrauststillögunni, sem var á endanum felld.

„Framkoma ráðherra Vinstri grænna er fordæmalaus í þessu máli,“ sagði Jón meðal annars í umræðu á Alþingi í dag.

„Hagsmunum alþýðunnar, starfsfólks og fyrirtækja er fórnað á altari málstaðar sem engar forsendur eru fyrir,“ bætti Jón við en hann fór vægast sagt ófögrum orðum um Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra.

Uppfært: 

mbl.is