Poppstjarnan Páll Óskar Hjálmtýsson giftist ástinni heima í stofu þann 27. mars síðastliðinn. Sá heppni heitir Edgar Antonio Lucena Angarita og er hann fæddur 1983.

Angarita er ættaður frá Venesúela og nú hefur allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis lagt til að hann fái íslenskt ríkisfang.
Brynhildur Björnsdóttir, athafnastjóri hjá Siðmennt, gaf hjónin saman heima í stofu og var mikil gleði í loftinu. Páll Óskar greindi frá því að þetta væri besti dagur lífs þeirra og hann væri fullur af ást og skilyrðislausum kærleika.
„Allir sem þekkja mig segja það sama: Þau hafa aldrei séð mig svona hamingjusaman í lífinu. Ég ætla að vera besti eiginmaður í heimi, og akkúrat þegar þú heldur að ég geti ekki orðið betri fyrir þig, þá mun ég halda áfram að koma þér á óvart, bæta mig meira og verða bara betri,“ sagði Páll Óskar á Facebook-síðu sinni daginn eftir brúðkaupið.