Körfuboltastjarnan Kristófer Acox hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu og liði Vals undanfarin ár. Nú er hann kominn á fast en hann birti mynd af sér og Guðrúnu Elísabetu Björgvinsdóttur á félagsmiðlinum Instagram. Hún er afrekskona í fótbolta og mikil markadrottning. Haustið 2022 sagði hún skilið við Aftureldingu og gekk til liðs við Hlíðarendafélagið Val.

Körfubolti og fótbolti sameinast hjá þessu nýja stjörnupari sem hefur verið að hittast í nokkra mánuði.
Kristófer æfir allt að 20 klukkustundir á viku og leggur mikla áherslu á að vera með góða rútínu, hvort sem það er á venjulegum degi eða á mikilvægum keppnisdegi. Þótt Kristófer hafi ekki byrjað að æfa körfubolta fyrr en á unglingsárum hafði þó alltaf blundað í honum mikill áhugi fyrir körfunni og var hann því fljótlega kominn á kaf í íþróttina.
„Ég byrjaði snemma að æfa fótbolta þegar ég var krakki en kom ekki inn í körfuboltann fyrr en á unglingsárunum. Það var ekki fyrr en ég var að verða 15 ára að ég byrjaði að æfa körfu af fullum krafti – annars hafði ég bara mætt á æfingar hér og þar en entist aldrei lengi,“ sagði Kristófer í viðtali við Smartland á dögunum.
Smartland óskar þeim til hamingju með ástina!