Skemmdarverk unnin

Grásleppuveiðar | 25. júní 2024

Skemmdarverk unnin

„Við teljum að verið sé að vinna mikið skemmdarverk á veiðistjórngrásleppu og það er verið að gera miklum meirihluta þeirra sem hafa stundað veiðarnar ókleift að halda áfram veiðum,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda um nýsamþykkt lög um kvótasetningu á grásleppu.

Skemmdarverk unnin

Grásleppuveiðar | 25. júní 2024

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, segir vombrigði að kvótasetning grásleppu …
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, segir vombrigði að kvótasetning grásleppu hafi verið samþykkt. mbl.is/Golli

„Við teljum að verið sé að vinna mikið skemmdarverk á veiðistjórngrásleppu og það er verið að gera miklum meirihluta þeirra sem hafa stundað veiðarnar ókleift að halda áfram veiðum,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda um nýsamþykkt lög um kvótasetningu á grásleppu.

„Við teljum að verið sé að vinna mikið skemmdarverk á veiðistjórngrásleppu og það er verið að gera miklum meirihluta þeirra sem hafa stundað veiðarnar ókleift að halda áfram veiðum,“ segir Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda um nýsamþykkt lög um kvótasetningu á grásleppu.

„Það eru okkur mikil vonbrigði að frumvarpið skuli hafa farið í gegn. Við áttum engan veginn von á því,“ segir hann. Samtökin hafi krafist lagfæringa á kerfinu, en það sem nú blasi við sé algjörlega óviðunandi.

Hann bendir á að frumvarpið hafi komið frá atvinnuveganefnd Alþingis fyrir beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra á þeim tíma og segist ekki skilja að hún hafi ekki lagt það fram sjálf. Það hafi síðan verið lagt fram á Alþingi, mælt fyrir því og umsagna leitað sem skilað var inn í febrúar. Frumvarpið hafi verið á borði nefndarinnar þar til undir þinglok nú í júní og lítill tími gefist til að ræða mögulegar breytingar.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

mbl.is