Sunneva klæddist tveimur bikiníum í einu

Fatastíllinn | 26. júní 2024

Sunneva Eir Einarsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og viðskiptafræðingur, skellti sér til Króatíu á dögunum. Hún var léttklædd í ferðinni en ákvað þó að klæðast tveimur bikiníum samtímis. 

Sunneva Eir Einarsdóttir klæddist bláu bikiníi og hvítu bikiníi.
Sunneva Eir Einarsdóttir klæddist bláu bikiníi og hvítu bikiníi. Skjáskot/Instagram

Sunneva Eir Einarsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og viðskiptafræðingur, skellti sér til Króatíu á dögunum. Hún var léttklædd í ferðinni en ákvað þó að klæðast tveimur bikiníum samtímis. 

Sunneva Eir Einarsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og viðskiptafræðingur, skellti sér til Króatíu á dögunum. Hún var léttklædd í ferðinni en ákvað þó að klæðast tveimur bikiníum samtímis. 

Það er greinilegt að Sunneva klæðist tveimur bikiníum á myndum sem hún birti af sér njóta lífsins á snekkju. Annars vegar er hún í hvítu bíkiníi með þríhyrndum brjóstahaldara og hins vegar er hún í bláu bikiníi þar sem toppurinn er án banda. Samsetning Sunnevu kemur vel út, hvítu og bláu baðfötin njóta sín þar sem hún sólar sig við kristaltæran sjóinn. 

Samfélagsmiðlastjarnan er vön því að vera með puttana á púlsinum þegar tíska er annars vegar. Þær stelpur sem eru á leiðinni í sólina eða bara heita pottinn í sumar ættu kannski að prófa að klæðast tveimur bikiníum í einu. 

mbl.is