Nýverið birtist grein á ferðavef mbl.is þar sem farið var yfir verðlag sundlauga á Höfuðborgarsvæðinu samkvæmt gjaldskrá á sundlaugar.is, en þar kom í ljós að dýrasta sundferðin er í Reykjavík og kostar 1.330 krónur. Þá kom einnig í ljós að á einu ári hafði stök sundferð hækkað um 120 krónur í verði, en árið áður kostaði sundferðin 1.210 krónur.

Á síðasta ári tók ferðavefur mbl.is saman lista yfir dýrustu sundlaugar landsins eftir að mikil umræða skapaðist í Facebook-hópnum „Fjármálatips“ þegar mynd af verðskrá sundlaugarinnar á Húsafelli var birt, en þar kostaði aðgangur fyrir fullorðna í laugina 3.800 krónur. Þá kostaði sundferðin 1.500 krónur fyrir börn á aldrinum 10-16 ára, en frítt fyrir börn undir 10 ára aldri.
Í dag, ári síðar, gildir sama verðskrá í sundlaugina á Húsafelli sem gerir hana að dýrustu sundferð landsins.
Næstdýrasta sundferð landsins er í sundlauginni í Laugarnesi við Birkimel, Sundlaug Stokkseyrar og Sundhöllinni Selfossi, en í þessum sundlaugum kostar stakt gjald fyrir fullorðna 1.700 krónur.
Á síðasta ári var sundlaugin við Laugarnes einnig næstdýrasta sundferð landsins, en verðskráin hefur ekki breyst þar. Hins vegar rötuðu hvorki Sundlaug Stokkseyrar né Sundhöllin Selfossi inn á listann í fyrra.
Í sundlaugina í Laugarnesi við Birkimel borga börn á aldrinum 6-16 ára 500 krónur fyrir staka sundferð, en yngri börn fá að fara frítt í laugina. Í Sundlaug Stokkseyrar og Sundhöllinni Selfossi borga börn á aldrinum 10-17 ára 350 krónur fyrir staka sundferð, en börn yngri en 10 ára fara frítt í laugina.
Því næst eru fjórar sundlaugar sem selja staka sundferð á 1.500 krónur, en það eru Lýsulaugar í Staðarsveit, Neslaug í Árnesi, Skeiðalaug í Brautarholti og Sundlaugin Blönduósi. Á síðasta ári kostaði sundferðin 1.500 krónur í tvær laugar, Lýsulaugar og Skeiðalaug, en nú hafa tvær sundlaugar bæst í hópinn.
Börn á aldrinum 10-17 ára borga 500 krónur fyrir staka sundferð í Lýsulaugar, en yngri börn fá að fara frítt í laugina. Í Neslaug og Skeiðalaug borga börn á aldrinum 11-18 ára 500 krónur fyrir eina sundferð, en fá frítt ofan í laugina til 10 ára aldurs. Í Sundlauginni Blönduósi borga börn á aldrinum 8-18 ára 500 krónur fyrir sundferðina, en yngri börn fá frítt.