Leikarinn Ben Affleck er búinn að setja upp giftingahringinn aftur og passar að allir taki eftir því. Orðrómur um skilnað hans og Jennifer Lopez hefur verið hávær að undanförnu.

Affleck var með aðra höndina út um gluggann á leið sinni frá skrifstofu sinni í Los Angeles á þriðjudaginn. Þar var hann myndaður af götuljósmyndara Page Six sem kom auga á hring á hendi Afflecks.
Beðið er í ofvæni eftir skilnaðaryfirlýsingu frá Affleck og Lopez. Það vakti mikla athygli á dögunum þegar Affleck spásseraði um Los Angeles án giftingahringsins á meðan Lopez sólaði sig ein á Ítalíu. Hringurinn er kominn aftur á hendina en hjónabandið enn í molum. Lopez aflýsti tónleikaferðalagi sínu í sumar til þess að einbeita sér að fjölskyldunni.