Laxey komin með rekstrar- og starfsleyfi

Fiskeldi | 27. júní 2024

Miklum áfanga lauk á dögunum hjá Laxey hf. sem vinnur að því að koma sjö þúsund tonna landeldisstöð í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum í fullan rekstur, en fyrirtækið hefur bæði fengið starfsleyfi útgefið af Umhverfisstofnun og rekstrarleyfi útgefið af Matvælastofnun, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Höfuðstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum.
Höfuðstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum. Mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

Miklum áfanga lauk á dögunum hjá Laxey hf. sem vinnur að því að koma sjö þúsund tonna landeldisstöð í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum í fullan rekstur, en fyrirtækið hefur bæði fengið starfsleyfi útgefið af Umhverfisstofnun og rekstrarleyfi útgefið af Matvælastofnun, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Miklum áfanga lauk á dögunum hjá Laxey hf. sem vinnur að því að koma sjö þúsund tonna landeldisstöð í Viðlagafjöru í Vestmannaeyjum í fullan rekstur, en fyrirtækið hefur bæði fengið starfsleyfi útgefið af Umhverfisstofnun og rekstrarleyfi útgefið af Matvælastofnun, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Stefnt er að því að seiði verði alin upp í seiðaeldisstöð í Friðarhöfn og verði flutt á sérútbúnum seiðaflutningavögnum til matfiskeldis í eldisstöðinni í Viðlagafjöru. Áætlað er að nýta jarðsjó og hlýjan yfirborðssjó í eldisstöðinni í Viðlagafjöru.

Í starfsleyfinu setur Umhverfisstofnun meðal annars skilyrði um að mannvirki við útrás frárennslis skuli tryggilega frágengið þannig að það sé viðunandi rennsli. Einnig er Laxey gert að „tryggja viðunandi hreinsun frárennslisvatns með tromlusíu eða öðrum sambærilegum eða betri búnaði sem hreinsar frárennslið áður en því er veitt í viðtakatjörn/viðtaka.“

Nánar er fjallað um málið í Morgunblaðinu í dag.

mbl.is