Synir tónlistarkonunnar Britney Spears, þeir Jayden James 17 ára og Sean Preston 18 ára, virðast opnir fyrir því að bæta samband sitt við móður sína eftir símtal við hana á mæðradaginn.

Spears hefur átt í stormasömu sambandi við drengi sína sem hafa að mestu búið hjá föður sínum sínum, Kevin Federline, undanfarin ár en söngkonan missti forræði yfir þeim árið 2008.
Feðgarnir fluttu til Havaí í fyrra ásamt eiginkonu Federline, Victoriu Prince, og börnunum þeirra tveimur. Spears mótmælti því ekki að drengirnir hennar flyttu til paradísareyjunnar.
Umboðsmaður Federline, Mark Vincent Kaplan, segir í viðtali við Page six að Federline styðji strákana í að eiga í samskiptum við móður sína og að hann sé glaður að þeir áttu loksins símtal við hana í tilefni mæðradagsins.
„Símtalið var klárlega jákvætt merki og skref í rétta átt, en þetta er sáttarferli sem mun taka meira en bara eitt símtal,“ segir Kaplan.
Í júní á síðasta ári neitaði Federline að flytja með drengina til þess að nýta sér göt í réttarkerfinu sem hefði mögulega getað gert róðurinn enn þyngri fyrir Spears.
Spears hefur ekki hitt syni sína í meira en ár meðal annars vegna þess að þeir hafa verið óánægðir hvernig móðir þeirra hagar sér á samfélagsmiðlum. Í viðtali árið 2022 sagði Jayden James að hann vildi aðeins að móðir hans verði betri andlega. Um leið og það gerist verður hann tilbúinn að hitta hana aftur.