Jarðskjálfti af stærðinni 3,4 mældist í norðanverðri Bárðarbunguöskju klukkan 11.18 í dag. Þá mældist annar skjálfti að stærð 1,2 klukkan 11.37.

Í samtali við mbl.is segir Sigríður Magnea Óskarsdóttir, náttúruvársérfræðingur Veðurstofu Íslands, að virknin sé ekki óeðlileg.
„Þetta er dottið niður núna og er bara mjög hefðbundin virkni.“
Hún segir að frá áramótum hafi 14 skjálftar, 3 að stærð eða stærri, mælst á svæðinu.