Í eins fötum 38 árum síðar

Fatastíllinn | 1. júlí 2024

Í eins fötum 38 árum síðar

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur ekkert breyst síðan hún var tvítug. Fyrirsætan birti gamla mynd af sér í leðurjakka og sést varla að fyrirsætan er orðin 58 ára gömul. 

Í eins fötum 38 árum síðar

Fatastíllinn | 1. júlí 2024

Cindy Crawford birti gamla og nýja mynd af sér á …
Cindy Crawford birti gamla og nýja mynd af sér á Instgram. Samsett mynd

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur ekkert breyst síðan hún var tvítug. Fyrirsætan birti gamla mynd af sér í leðurjakka og sést varla að fyrirsætan er orðin 58 ára gömul. 

Ofurfyrirsætan Cindy Crawford hefur ekkert breyst síðan hún var tvítug. Fyrirsætan birti gamla mynd af sér í leðurjakka og sést varla að fyrirsætan er orðin 58 ára gömul. 

Fyrirsætan birti myndirnar í tilefni þess að snyrtivörumerki hennar, Meaningful Beauty, var 20 ára á dögunum. „Til þess að hjálpa okkur að fagna birtið mynd af ykkur síðan þið voruð 20 ára og mynd af ykkur í dag,“ skrifaði Crawford meðal annars á Instagram. 

Crawford lét sitt ekki eftir liggja og birti mynd af sér í leðurjakka með slegið hár og aðra mynd af sér í eins leðurjakka með slegið hár að hætti Cindy Crawford. Myndirnar tvær sýna ekki bara að Crawford hefur lítið breyst á síðastliðnum 38 árum heldur að líka leðurjakkatískan hefur lítið breyst. 

mbl.is