Jóhanna Helga og Geir ástfangin í sex ár

Instagram | 4. júlí 2024

Jóhanna Helga og Geir ástfangin í sex ár

Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, fagna sex ára sambandsafmæli sínu í dag.

Jóhanna Helga og Geir ástfangin í sex ár

Instagram | 4. júlí 2024

Unga parið er yfir sig ástfangið.
Unga parið er yfir sig ástfangið. Skjáskot/Instagram

Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, fagna sex ára sambandsafmæli sínu í dag.

Samfélagsmiðlastjarnan Jóhanna Helga Jensdóttir og Geir Ulrich Skaftason, viðskiptastjóri hjá Isavia, fagna sex ára sambandsafmæli sínu í dag.

Í tilefni dagsins birti Jóhanna Helga skemmtilega myndaseríu á Instagram-reikningi sínum sem sýnir parið í gegnum árin.

„Sex ár! Takk fyrir fjölskylduna okkar, ógleymanleg ferðalög og takk fyrir að gera allt betra. Hlakka til áranna framundan, lífið er best með þér, skrifaði Jóhanna Helga við færsluna.

Framundan eru spennandi tímar hjá parinu en það á von á sínu öðru barni á komandi mánuðum. Jóhanna Helga og Geir greindu frá gleðitíðindunum í byrjun apríl. Fyrir eiga þau dótturina Tinnu Maríu sem kom í heiminn þann 17. mars 2020.

mbl.is