Sumarlegt rabarbarasíróp með vanillu fyrir þig

Uppskriftir | 4. júlí 2024

Sumarlegt rabarbarasíróp með vanillu fyrir þig

Hinn auðmjúki rabarbari er heitasti ávöxturinn á Íslandi í dag og mikið hefur verið rætt um að hann sé vannýtt auðlind. Þá er best að skjótast út í garð og ná sér í nokkra stilka þar sem hann er að finna. Á Matarvefnum eru búnar að birtast nokkrar uppskriftir sem innihalda rabarbara, má þar nefna hjónabandssælu, Bennaköku og Móbergsrabarbarasultu. Við höldum áfram að bæta í sarpinn og koma með hugmyndir hvernig má nýta þennan dásamlega rabarbara.

Sumarlegt rabarbarasíróp með vanillu fyrir þig

Uppskriftir | 4. júlí 2024

Rabarbarasírópið má geyma í fallegum glerflöskum og skreyta í með …
Rabarbarasírópið má geyma í fallegum glerflöskum og skreyta í með borðum. Síðan er þetta líka falleg gjöf. Ljósmynd/Anna Björk Eðvarðsdóttir

Hinn auðmjúki rabarbari er heitasti ávöxturinn á Íslandi í dag og mikið hefur verið rætt um að hann sé vannýtt auðlind. Þá er best að skjótast út í garð og ná sér í nokkra stilka þar sem hann er að finna. Á Matarvefnum eru búnar að birtast nokkrar uppskriftir sem innihalda rabarbara, má þar nefna hjónabandssælu, Bennaköku og Móbergsrabarbarasultu. Við höldum áfram að bæta í sarpinn og koma með hugmyndir hvernig má nýta þennan dásamlega rabarbara.

Hinn auðmjúki rabarbari er heitasti ávöxturinn á Íslandi í dag og mikið hefur verið rætt um að hann sé vannýtt auðlind. Þá er best að skjótast út í garð og ná sér í nokkra stilka þar sem hann er að finna. Á Matarvefnum eru búnar að birtast nokkrar uppskriftir sem innihalda rabarbara, má þar nefna hjónabandssælu, Bennaköku og Móbergsrabarbarasultu. Við höldum áfram að bæta í sarpinn og koma með hugmyndir hvernig má nýta þennan dásamlega rabarbara.

Yndislega rauðbleikt og sumarlegt

Næst er það rabarbarasíróp sem steinliggur þegar þig langar í góðan sumardrykk. Það er hægt að nota sírópið út í kokteila eða setja góðan slurk út í sódavatnið með smá af nýkreistum límónusafa út í til að gefa því frískandi sumarbragð, eða smávegis í freyðivínsglasið. Þá verður freyðivínið svo fallegt á litinn, yndislega rauðbleikt og sumarlegt. Þessi uppskrift kemur úr smiðju Önnu Bjarkar Eðvarðsdóttur, formanns Hringsins en hún heldur líka úti uppskriftasíðu sem ber nafn með rentu Anna Björk matarblogg. Uppskriftina fann hún á veraldarvefnum og gerði að sinni.

Rabarbarasíróp með vanillu

  • 250 g saxaður rabarbari
  • 1 bolli sykur
  • 2 msk. hunang
  • 2 bollar vatn
  • ¼ tsk. kanill
  • ¼ tsk. nýrifið múskat
  • ½ vanillustöng, fræin skafin út

Aðferð:

  1. Setjið saxaða rabarbarann í pott ásamt öllu hráefninu.
  2. Kljúfið vanillustöngina og skafið fræin úr á hníf og setjið í pottinn ásamt hýðinu .
  3. Látið suðuna koma upp og leyfið að malla í 5-7 mínútur., hrærið í blöndunni af og til. Takið pottinn af hitanum og látið maukið kólna alveg niður.
  4. Síið síða rabarbarann frá sírópinu, upplagt að nota hann t.d. út í jógúrtina eða ofan á ostaköku).
  5. Best er að sía sírópið, fyrst í gegnum gróft sigti og síðan 2-3 sinnum í gegnum fínt sigti. Setjið síðan sírópið í flösku og geymið í kæli yfir nótt.
  6. Til að fá alveg tært síróp er upplagt að sigta það aftur og henda botnfallinu.
  7. Nýtið síðan sírópið í það sem ykkur dettur í hug.
  8. Sírópið geymist í kæli í um það bil 2 vikur.
mbl.is