Sítrónukakan frá ástríðubakaranum í Móberginu

Uppskriftir | 6. júlí 2024

Þá er komið að helg­ar­bakstr­in­um sem er ómiss­andi hér á mat­ar­vefn­um og nýt­ur mik­illa vin­sælda. Nú töfrar Brynja Dadda Sverr­is­dótt­ir, ástríðubakari í Móberginu í Kjós, fram dýrlega sítrónuostaköku sem er sáraeinfalt að gera og allir ráða við. Þessa þarf að gera daginn áður en það á að bera hana fram. Spurning um að drífa í því að gera þessa og eiga með sunnudagskaffinu.

Dýrleg sneið af sítrónuostakökunni hennar Brynju Döddu.
Dýrleg sneið af sítrónuostakökunni hennar Brynju Döddu. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Þá er komið að helg­ar­bakstr­in­um sem er ómiss­andi hér á mat­ar­vefn­um og nýt­ur mik­illa vin­sælda. Nú töfrar Brynja Dadda Sverr­is­dótt­ir, ástríðubakari í Móberginu í Kjós, fram dýrlega sítrónuostaköku sem er sáraeinfalt að gera og allir ráða við. Þessa þarf að gera daginn áður en það á að bera hana fram. Spurning um að drífa í því að gera þessa og eiga með sunnudagskaffinu.

Þá er komið að helg­ar­bakstr­in­um sem er ómiss­andi hér á mat­ar­vefn­um og nýt­ur mik­illa vin­sælda. Nú töfrar Brynja Dadda Sverr­is­dótt­ir, ástríðubakari í Móberginu í Kjós, fram dýrlega sítrónuostaköku sem er sáraeinfalt að gera og allir ráða við. Þessa þarf að gera daginn áður en það á að bera hana fram. Spurning um að drífa í því að gera þessa og eiga með sunnudagskaffinu.

Sítrónuostakaka ástríðubakarans

Botn

  • 1 pk. engiferkex mulið niður
  • 80 g smjör, brætt (kexið getur verið svolítið misjafnt og því má bæta við smjöri ef það er mjög þurrt)
  • Blandað saman og þrýstið í mót í meðalstærð

Fylling

  • 1 pk. sítrónuhlaup, leyst vel upp í einum bolla af sjóðandi vatni og síðan kælt
  • 400 g rjómaostur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • ½ bolli sykur
  • 1 og ½ dl rjómi, þeyttur

Aðferð:

  1. Hrærið saman rjómaosti, sykri og vanilludropum.
  2. Bætið hlaupinu varlega saman við í mjórri bunu ef það er enn þá hiti í því.
  3. Setjið að lokum þeytta rjómann saman við.
  4. Kælið, þarf helst nokkra tíma í kælingu og þannig er best að gera þessa með dags fyrirvara.
  5. Berið fram þegar tilefni er til og njótið.
mbl.is