Joe Biden Bandaríkjaforseti er ekki í meðferð við Parkinson-sjúkdómnum, að sögn talskonu Hvíta hússins.

Fjölmiðlar vestanhafs greindu frá því í dag að á átta mánaða tímabili hefði sérfræðingur í lækningum við Parkinson heimsótt Hvíta húsið að minnsta kosti átta sinnum.
Um er að ræða tímabilið frá júlí í fyrra til og með febrúar í ár.
„Hefur forsetinn verið í meðferð fyrir Parkinson? Nei. Er hann í meðferð vegna Parkinson? Nei, það er hann ekki. Er hann að taka lyf gegn Parkinson? Nei,“ sagði Karine Jean-Pierre, fjölmiðlafulltrúi forsetaembættisins, á blaðamannafundi nú í kvöld að íslenskum tíma.
Til snarpra orðaskipta kom milli blaðamanns og talskonu Bidens á blaðamannafundinum eins og sjá má í myndskeiði hér að neðan.
Sagðist hún ekki myndu staðfesta nöfn á þeim læknum sem hafa hitt Biden. Dagblaðið New York Times fullyrti að læknirinn væri dr. Kevin Cannard, sem hefur unnið með Hvíta húsinu í 12 ár samkvæmt LinkedIn-síðu sinni.
„Það skiptir ekki máli hversu mikið þú þrýstir á mig. Skiptir engu hversu pirraður þú verður út í mig. Ég er ekki að fara að staðfesta neitt nafn,“ sagði Jean-Pierre.