Landsnet kaupir 38 km af sæstrengjum

Orkuskipti | 9. júlí 2024

Landsnet kaupir 38 km af sæstrengjum

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, hefur skrifað undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable um kaup og lagningu á 38,8 km af sæstrengjum.

Landsnet kaupir 38 km af sæstrengjum

Orkuskipti | 9. júlí 2024

Frá undirskriftinni.
Frá undirskriftinni. Ljósmynd/Aðsend

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, hefur skrifað undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable um kaup og lagningu á 38,8 km af sæstrengjum.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, hefur skrifað undir samning við fulltrúa frá Hengtong Submarine Cable um kaup og lagningu á 38,8 km af sæstrengjum.

Um er að ræða tvo nýja Vestmannaeyjastrengi og nýjan streng yfir Arnarfjörðinn, að því er kemur fram í tilkynningu. Lagningarskip kemur til landsins næsta sumar og mun leggja alla strengina.

Bæta afhendingaröryggi

„Nýju strengirnir munu bæta afhendingaröryggið á svæðunum til muna,“ segir í tilkynningunni.

Frá Rimakoti verður lagður 3,5 km langur jarðstrengur sem tengist sæstreng um 250 m frá fjöruborðinu í Landeyjarfjöru. Þaðan verður 13 km langur sæstrengur lagður til Vestmannaeyja og tengjast 1,3 km jarðstreng að tengivirki í bænum.

Framkvæmd Mjólkárlínu 2 felst í lagningu nýs 66 kV jarðstrengs 2,4 km frá Bíldudal meðfram sunnanverðum Bíldudalsvogi að Haganesi. Nýr 66 kV sæstrengur 11,8 km verður lagður yfir Arnarfjörð fyrir Langanes að Hrafnseyri. Að lokum verður lagður 66 kV jarðstrengur frá Mjólká og þangað sem sæstrengurinn kemur í land við Hrafnseyri.

mbl.is