„Stjórnleysi á franska þinginu“

Dagmál | 9. júlí 2024

„Stjórnleysi á franska þinginu“

Margar vikur eða jafnvel mánuðir gætu liðið áður en nýr forsætisráðherra tekur við stjórnartaumunum og myndar nýja ríkisstjórn í Frakklandi. Seinni umferð þingkosninganna lauk um helgina þar sem Nýja lýðfylkingin, bandalag vinstriflokka, hlaut flest þingsæti.

Björn Malmquist, fréttamaður á Rúv, hefur fylgst náið með kosningunum og ræðir niðurstöður þeirra í Dagmálum í dag.

Jean-Luc Mélenchon er leiðtogi stærsta flokksins innan bandalags vinstriflokkanna. Hann …
Jean-Luc Mélenchon er leiðtogi stærsta flokksins innan bandalags vinstriflokkanna. Hann þykir þó umdeildur og ólíklegt er að hann verði næsti forsætisráðherra Frakka. AFP/Sameer Al-Doumy

Engin augljós leið

„Stærsta niðurstaðan er kannski sú, að það er í rauninni stjórnleysi á franska þinginu. Það er enginn meirihluti, í fyrsta lagi, það er enginn sem nálægt því að vera með meirihluta. Og í öðru lagi, það er engin augljós leið til að mynda meirihluta,“ segir Björn. 

Nýja lýðfylkingin tryggði sér 188 sæti á þinginu. Miðjubandalag Emmanuels Macrons Frakklandsforseta hlaut næst mest fylgi í kosningunum og tryggði sér 161 sæti. Þjóðfylking Marine Le Pen, sem vann góðan sigur í fyrri umferð kosninganna, tryggði sér 142 sæti. Alls eru 577 sæti á franska þinginu.

Björn segir langt á milli bandalags vinstriflokkanna og miðjubandalagsins. Það gefi til kynna að erfitt verði fyrir bandalögin að koma sér saman um að mynda meirihluta á þinginu. 

Þáttinn í heild sinni má horfa á með því að smella hér fyrir neðan. 

mbl.is