YouTube-stjarnan Frankie Grande, bróðir söngkonunnar Ariönu Grande, er bólginn í andlitinu eftir nefaðgerð sem hann undirgekkst á dögunum.

Hann birti heldur óhugnanlega mynd af sér á samfélagsmiðlum sínum þar sem má sjá bólgin og þrútin augu hans í öllum regnbogans litum. Þar að auki var nýskornu nefi hans haldið kirfilega með plástrum og umbúðum.
Ariana Grande sýndi eldri bróður sínum stuðning. „Fullkominn á alla vegu, alltaf!!!!“ skrifaði hún við færsluna hans.
Frankie Grande varð afar áhyggjufullur þegar nef hans fór að bólgna mikið eftir að læknir hans tók plástrana af. Hann er þó vongóður um að nýja nefið eigi eftir að jafna sig að fullu.
Frankie og Ariana, sem eru hálfsystkini, hafa alltaf átt náið systkinasamband og þau hafa oft stutt hvort við annað á erfiðum tímum.