Graf sýnir breytingar á kvikuinnstreyminu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 10. júlí 2024

Graf sýnir breytingar á kvikuinnstreyminu

GPS- og gervihnattagögn sýna að landrisið við Svartsengi er hraðar en áður en eldgosið hófst 29. maí.

Graf sýnir breytingar á kvikuinnstreyminu

Eldvirkni á Reykjanesskaga | 10. júlí 2024

Meiri kvika flæðir nú inn í kvikuhólfið undir Svartsengi en …
Meiri kvika flæðir nú inn í kvikuhólfið undir Svartsengi en í maí. Ljósmynd/Hörður Kristleifsson

GPS- og gervihnattagögn sýna að landrisið við Svartsengi er hraðar en áður en eldgosið hófst 29. maí.

GPS- og gervihnattagögn sýna að landrisið við Svartsengi er hraðar en áður en eldgosið hófst 29. maí.

Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að líkanreikningar byggðir á aflögunargögnum bendi til að kvikuinnstreymi sé meira nú en í maí.

Jóhanna Malen Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni, segir um eðlilega þróun að ræða þar sem nú sé ekki eldgos í gangi á sama tíma og kvika safnast fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Þannig fari meiri kvika í hólfið nú en þá.

Kvikuinnstreymið minna en á síðasta ári

Jóhanna vekur athygli á því að áætlað kvikuinnstreymi núna sé svipað og kvikuinnstreymið á fyrsta ársfjórðungi, eins og sjá má á grafinu hér fyrir neðan.

Þá sé innstreymi kviku í dag mun minna en fyrir áramót, en í október og nóvember var það áætlað allt að 9-10 rúmmetrar á sekúndu.

Hér má sjá graf sem lýsir áætluðu innstreymi kviku í …
Hér má sjá graf sem lýsir áætluðu innstreymi kviku í hólfið undir Svartsengi. Graf/Veðurstofa Íslands
mbl.is