Saturday Night Live-grínistinn Pete Davidson og leikkonan Madelyn Cline eru sögð hætt saman. Parið sást fyrst saman í september í fyrra.

Heimildarmaður The Sun sem þekkir til Davidson segir að sambandið hafi einfaldlega fjarað út. „Þau enduðu sambandið frekar nýlega og mér skilst að það hafi verið sameiginleg ákvörðun,“ sagði heimildarmaðurinn.
Parið lét lítið fyrir sér fara opinberlega en það sást síðast saman þegar Cline mætti á uppistand Davidson í Philadelphiu í janúar. Þau sáust einnig saman í New York í desember.
Davidson er þekktur fyrir sambönd sín við stórstjörnur. Undanfarin ár hefur hann meðal annars verið með leikkonunni Chase Sui Wonders og raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian.