Rússneskur dómstóll hefur gefið út handtökuskipun á hendur Júlíu Navalnaja, ekkju rússneska stjórnarandstæðingsins Alexeis Navalnís. Dómstóllinn í Moskvu segir hana taka þátt í „öfgasamtökum“.

Navalnaja hefur heitið því að halda áfram starfi Navalnís og andstöðu við yfirvöld í Rússlandi, en Navalní lét lífið fyrr á árinu í rússnesku fangelsi. Rússar bönnuðu andstöðuhreyfingar Navalnís heitins og skilgreindu þær sem öfgasamtök sem voru sett á hryðjuverkalista.
„Vladimír Pútín er morðingi og stríðsglæpamaður. Hann á heima í fangelsi,“ skrifaði Júlía á samfélagsmiðlum í gær í kjölfar þess að handtökuskipunin var gefin út.
Hún er ekki búsett í Rússlandi og má því gera ráð fyrir því að hún yrði handtekin ef hún kæmi til landsins.
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, fordæmdi handtökuskipunina harðlega á samfélagsmiðlum.
„Handtökuskipunin gegn Júlíu Navalnaja er handtökuskipun gegn þránni fyrir frelsi og lýðræði,“ skrifaði Scholz á Twitter.