Giftu sig í leynilegri athöfn

Ást í Hollywood | 11. júlí 2024

Giftu sig í leynilegri athöfn

Leikkonan Olivia Munn og Saturday Night Live-stjarnan John Mulaney gengu í hjónaband um helgina í New York-ríki í Bandaríkjunum.

Giftu sig í leynilegri athöfn

Ást í Hollywood | 11. júlí 2024

Olivia Munn og John Mulaney eru gift.
Olivia Munn og John Mulaney eru gift. Samsett mynd

Leikkonan Olivia Munn og Saturday Night Live-stjarnan John Mulaney gengu í hjónaband um helgina í New York-ríki í Bandaríkjunum.

Leikkonan Olivia Munn og Saturday Night Live-stjarnan John Mulaney gengu í hjónaband um helgina í New York-ríki í Bandaríkjunum.

Munn og Mulaney völdu einfalda athöfn og giftu sig heima hjá vinum sínum að því fram kemur á vef People. Aðeins tveggja ára sonur þeirra var viðstaddur sem og vitni. 

Greindist með brjóstakrabbamein

Munn greindist með brjóstakrabbamein í fyrra og sagði hún frá því fyrir nokkrum mánuðum hversu hræðileg upplifunin hefði verið. „Þú áttar þig á því að krabbameini er sama hvort þú eigir barn eða hvort þú hafir tíma,“ sagði hún í viðtali við People. „Það kemur og þú átt engra annarra kosta völ en að mæta því.“

Kynntust árið 2001

Fyrst fréttist af sambandi þeirra Munn og Mulaney í maí 2021. Í september sama ár greindi hann frá því að þau ættu von á barni saman. „Um vorið fór ég til Los Ang­eles og kynnt­ist ynd­is­legri konu að nafni Oli­via. Við hóf­um ástar­sam­band og þetta hef­ur verið ótrú­lega fal­legt með svona magnaðiri mann­eskju. Og við eig­um von á barni,“ sagði Mula­ney á sínum tíma. 

Leikkonan Olivia Munn.
Leikkonan Olivia Munn. AFP
mbl.is