Hvar er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar?

Ferðumst innanlands | 11. júlí 2024

Hvar er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar?

Ert þú á leiðinni í útilegu um helgina? Ef þig langar að sleppa við það að pakka tjaldinu saman blautu á sunnudaginn þá ættir þú að leggja leið þína á Austurland, en þar er spáð glampandi sól og bongóblíðu alla helgina.

Hvar er besta veðrið fyrir tjaldútilegu helgarinnar?

Ferðumst innanlands | 11. júlí 2024

Austurland ætlar að bjóða upp á bongóblíðu um helgina!
Austurland ætlar að bjóða upp á bongóblíðu um helgina! Ljósmynd/Pexels/Cliford Mervil

Ert þú á leiðinni í útilegu um helgina? Ef þig langar að sleppa við það að pakka tjaldinu saman blautu á sunnudaginn þá ættir þú að leggja leið þína á Austurland, en þar er spáð glampandi sól og bongóblíðu alla helgina.

Ert þú á leiðinni í útilegu um helgina? Ef þig langar að sleppa við það að pakka tjaldinu saman blautu á sunnudaginn þá ættir þú að leggja leið þína á Austurland, en þar er spáð glampandi sól og bongóblíðu alla helgina.

Ferðavefur mbl.is tók saman þau fimm tjaldsvæði þar sem besta veðrinu er spáð yfir helgina samkvæmt tjaldvef Bliku

Skipalækur 2

Búist er við besta veðrinu á tjaldsvæðinu Skipalæk sem staðsett er í Fellabæ í um þriggja kílómetra fjarlægð frá miðbæ Egilsstaða. Þar á að vera glampandi sól alla helgina, en á föstudaginn er spáð 21°C og sunnan 5 m/s. Á laugardaginn er reiknað með 22°C og áfram sunnan 5 m/s, en á sunnudaginn er búist við 23°C og suðvestan 1 m/s. 

Tjaldsvæðið er friðsælt í fallegu umhverfi, en þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, rafmagni, salerni og gjaldfrjálsri sturtu. Þá eru hundar leyfðir á svæðinu. 

Veðurspáin er frábær á tjaldsvæðinu Skipalæk um helgina.
Veðurspáin er frábær á tjaldsvæðinu Skipalæk um helgina. Ljósmynd/Tjalda.is

Egilsstaðir

Það á einnig að vera bongóblíða á tjaldsvæðinu á Egilsstöðum alla helgina þar sem spáð er glampandi sól og frábærum hitatölum. Á föstudaginn er reiknað með 21°C og suðvestan 4 m/s, á laugardaginn er spáð 22°C og suðvestan 3 m/s og á sunnudaginn er spáð 23°C og vestan 2 m/s.

Tjaldsvæðið er miðsvæðis í bænum og þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, rafmagni, salerni, gjaldfrjálsri sturtu og eldunaraðstöðu. Þá eru hundar leyfðir á svæðinu. 

Veðrið á einnig að vera frábært á Egilsstöðum.
Veðrið á einnig að vera frábært á Egilsstöðum. Ljósmynd/East.is

Stóra Sandfell

Veðrið á ekki að vera síðra á tjaldsvæðinu að Stóra-Sandfelli í Skriðdal sem staðsett er um 17 kílómetra sunnan við Egilsstaði. Þar er spáð glampandi sól alla helgina, en á föstudaginn er reiknað með 21°C og vestan 4 m/s. Á laugardaginn er aftur spáð 21°C og sunnan 5 m/s, en á sunnudaginn er spáð heilum 24°C og suðvestan 2 m/s. 

Tjaldsvæðið er staðsett í fallegu skóglendi og þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, salerni og gjaldfrjálsri sturtu. Þá eru hundar leyfðir á svæðinu. 

Búist er við að hitinn fari upp í allt að …
Búist er við að hitinn fari upp í allt að 24°C á sunnudaginn að Stóra-Sandfelli. Ljósmynd/Storasandfell.is

Ásbrandsstaðir l

Tjaldsvæðið við Ásbrandsstaði er staðsett utarlega, norðanmegin í Hofsárdal í um sjö kílómetra fjarlægð frá kauptúninu á Vopnafirði. Þar á einnig að vera frábært veður um helgina, en á föstudaginn er reiknað með að það verði skýjað, 22°C og suðvestan 5 m/s. Á laugardag og sunnudag á hins vegar að vera glampandi sól, en fyrri daginn er spáð 23°C og suðvestan 3 m/s og seinni daginn heilum 24°C og suðvestan 5 m/s. 

Á tjaldsvæðinu er hin fínasta aðstaða, en þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, rafmagni, salerni, gjaldfrjálsri sturtu og eldunaraðstöðu. Þá eru hundar leyfðir á svæðinu. 

Hitinn á einnig að fara upp í 24°C á tjaldsvæðinu …
Hitinn á einnig að fara upp í 24°C á tjaldsvæðinu við Ásbrandsstaði. Ljósmynd/East.is

Bakkagerði

Tjaldsvæðið við Bakkagerði á Borgarfirði eystri ætlar líka að bjóða upp á bongóblíðu um helgina, en þar er spáð glampandi sól frá föstudegi til sunnudags. Á föstudeginum er spáð 19°C og suðaustan 8 m/s, á laugardeginum er spáð 20°C og sustan 2 m/s og á sunnudeginum er spáð 22°C og suðaustan 3 m/s. 

Hin fínasta aðstaða er á svæðinu, en þar er aðgengi að köldu og heitu vatni, rafmagni, salerni, gjaldfrjálsri sturtu og eldunaraðstöðu. Þá eru hundar leyfðir á svæðinu.

Við Bakkagerði er einnig frábær spá alla helgina.
Við Bakkagerði er einnig frábær spá alla helgina. Ljósmynd/Blika.is
mbl.is