Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum hefur ákveðið að festa kaup á nýju hreinsikerfi fyrir frárennsli félagsins og er markmiðið að ná sem mestu próteini úr frávatni starfseminnar sem síðan er hægt að nýta í bræðslu félagsins.

Fullyrt er í fréttatilkynningu að um verulegt magn sé að ræða sem Vinnslustöðin getur framleitt verðmæti úr sem annars færi til spillis.
Um er að ræða kerfi frá þýska fyrirtækinu Huber Technology sem mun hreinsa frávatn frá uppsjávarhúsi, hvítfiskvinnslu og loðnubræðslu Vinnslustöðvarinnar, en afkastageta kerfisins er 400 rúmmetrar á klukkustund.
Samningur um kaup og þjónustu hleypur á annað hundrað milljónir króna og var gerður við Iðnver sem nýverið gerðist umboðsaðili þýska fyrirtækisins Huber Technology hér á landi, en félagið ytra sérhæfir sig í nýsköpun og tækninýjungum fyrir skólp og iðnaðarskólp og er þetta í fyrsta sinn sem vörur fyrirtækisins eru til sölu á Íslandi.
„Það er afar ánægjulegt að ná þessum stóra samningi við VSV sem er leiðandi fyrirtæki í sjávarútvegi. VSV hefur ávallt lagt mikla áherslu á gæði afurða sinna sem eru seldir á mörkuðum víða um heim,“ segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Iðnvers, í tilkynningunni.