Sharon Stone málar ber að ofan

Poppkúltúr | 11. júlí 2024

Sharon Stone málar ber að ofan

Sharon Stone er margt til lista lagt. Hún er ekki aðeins afburða leikkona heldur einnig hæfileikaríkur málari.

Sharon Stone málar ber að ofan

Poppkúltúr | 11. júlí 2024

Leikkonan kann að fara með pensil.
Leikkonan kann að fara með pensil. Samsett mynd

Sharon Stone er margt til lista lagt. Hún er ekki aðeins afburða leikkona heldur einnig hæfileikaríkur málari.

Sharon Stone er margt til lista lagt. Hún er ekki aðeins afburða leikkona heldur einnig hæfileikaríkur málari.

Stone, sem varð 66 ára gömul í mars, byrjaði að fikta með pensilinn fyrir nokkrum árum og með tímanum þróaðist þetta ágæta áhugamál yfir í starf. Leikkonan hefur haldið fjölmargar myndlistasýningar víða um heim og selt fjöldann allan af málverkum. 

Stone, þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á við Basic Instinct, Casino, Total Recall og The Specialist, gaf fylgjendum sínum á Instagram, sem telja tæplega fjórar milljónir, skemmtilega innsýn inn í sköpunarferlið á þriðjudag þegar hún birti mynd af sér að mála í listastúdíói sínu.

Leikkonan nýtur þess að mála fáklædd og var einungis klædd í bláar bikiníbuxur er hún skapaði nýjasta meistaraverk sitt enda nýkomin upp úr sundlauginni.

Stone sækir innblástur til Wassily Kandinsky, Joan Miró og Claude Monet. 

View this post on Instagram

A post shared by Sharon Stone (@sharonstone)

View this post on Instagram

A post shared by Sharon Stone (@sharonstone)



mbl.is