White Lotus-stjarna á von á barni eftir erfiðan missi

Meðganga | 11. júlí 2024

White Lotus-stjarna á von á barni eftir erfiðan missi

Leikkonan Alexandra Daddario og eiginmaður hennar, Andrew Form, eiga von á regnbogabarni eftir að hafa upplifað sársaukafullan missi. 

White Lotus-stjarna á von á barni eftir erfiðan missi

Meðganga | 11. júlí 2024

Alexandra Daddario er ófrísk.
Alexandra Daddario er ófrísk. AFP

Leikkonan Alexandra Daddario og eiginmaður hennar, Andrew Form, eiga von á regnbogabarni eftir að hafa upplifað sársaukafullan missi. 

Leikkonan Alexandra Daddario og eiginmaður hennar, Andrew Form, eiga von á regnbogabarni eftir að hafa upplifað sársaukafullan missi. 

Daddario frumsýndi óléttukúluna í viðtali við Vogue þar sem hún opnaði sig meðal annars um langa vegferð sína að móðurhlutverkinu. Hún birti svo mynd af óléttukúlunni á Instagram með skemmtilegri fyrirsögn sem hitti beint í mark hjá fylgjendum hennar: „Ég er spennt fyrir því að barnið mitt fari í leikskóla með börnum Margot Robbie og Hailey Bieber.“

Flóknar tilfinningar sem fylgdu þunguninni

„Ég er ófrísk og allt hefur gengið vel og allt er heilbrigt,“ sagði hún í viðtalinu við Vogue og bætti við að henni fyndist hún ekki eiga rétt á að kvarta yfir einkennum sínum. 

„Ég hef áður verið ófrísk. Þá upplifði ég missi. Það er langt og flókið, svo ég vil ekki fara of mikið út í það. Það er mjög erfitt að útskýra missi og áföll nema þú hafir gengið í gegnum þau. Ég tengist öllum konum sem hafa gengið í gegnum svona hluti á hátt sem ég skildi ekki alveg áður,“ útskýrði Daddario. 

Þegar viðtalið var tekið var leikkonan gengin sex mánuði á leið, en hún segir margar flóknar tilfinningar hafa fylgt því þegar hún komst að því að hún væri ófrísk aftur. „Það var reyndar frekar erfitt að vinna úr þessu,“ sagði hún. 

Daddario og Form hafa verið saman frá árinu 2021, en þau trúlofuðu sig í ágúst 2021 og gengu í það heilaga í júní 2022. Fyrir á Form tvo syni úr fyrra hjónabandi með Jordana Brewster, en þau voru í hjónabandi á árunum 2007 til 2020. 

mbl.is