320 milljóna glæsihöll á Arnarnesi

Heimili | 12. júlí 2024

320 milljóna glæsihöll á Arnarnesi

Við Þrastanes í Garðabæ er að finna afar tignarlegt 391 fm einbýli á þremur pöllum sem reist var árið 1979. Eignin var töluvert endurnýjuð á árunum 2021-2022 og innréttuð á stílhreinan máta.

320 milljóna glæsihöll á Arnarnesi

Heimili | 12. júlí 2024

Ásett verð er 320.000.000 krónur.
Ásett verð er 320.000.000 krónur. Samsett mynd

Við Þrastanes í Garðabæ er að finna afar tignarlegt 391 fm einbýli á þremur pöllum sem reist var árið 1979. Eignin var töluvert endurnýjuð á árunum 2021-2022 og innréttuð á stílhreinan máta.

Við Þrastanes í Garðabæ er að finna afar tignarlegt 391 fm einbýli á þremur pöllum sem reist var árið 1979. Eignin var töluvert endurnýjuð á árunum 2021-2022 og innréttuð á stílhreinan máta.

Eldhús, borðstofa og stofa eru samliggjandi í sérlega björtu alrými þar sem ljós litapalletta ræður ríkjum. Í eldhúsinu er stílhrein hvít innrétting með fallegum Siletone-stein á borðum, en góðir gluggar prýða rýmið þar sem útsýnið fær að njóta sín til fulls. 

Húsið er á þremur pöllum.
Húsið er á þremur pöllum. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Eldhúsið er afar bjart og stílhreint.
Eldhúsið er afar bjart og stílhreint. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Sjarmerandi arinn og tímalaus hönnun

Í stofunni er flottur arinn sem grípur strax augað og gefur rýminu mikinn sjarma. Þar má einnig sjá hið formfagra sófaborð sem er klassísk og tímalaus hönnun eftir Isamu Noguchi frá árinu 1944.

Í rúmgóðum sólskála hefur svo tómstundaherbergi verið komið fyrir með glæsilegri lýsingu, en þaðan er útgengt í gróinn garð um stórar rennihurðir. Alls eru fjögur svefnherbergi og þrjú baðherbergi í húsinu, þar af hjónasvíta á jarðhæð með sér fata- og baðherbergi. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Þrastanes 3

Frá stofunni er útgengt á svalir sem leiða út í …
Frá stofunni er útgengt á svalir sem leiða út í garð. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Í sólskálanum hefur mikið verið lagt upp úr lýsingunni.
Í sólskálanum hefur mikið verið lagt upp úr lýsingunni. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is