Hollywood-hjónin Ben Affleck og Jennifer Lopez hafa sett glæsilegt einbýlishús sitt í Beverly Hills á sölu. Parið, sem gekk í hjónaband þann 16. júlí 2022 við glæsilega athöfn í Savannah í Georgíu, festi kaup á glæsihýsinu snemma á síðasta ári.

Húsið var byggt árið 2000 og er það verðsett á 68 milljónir bandaríkjadala eða sem samsvarar níu milljörðum íslenskra króna. Það er 3.530 fermetrar að stærð og hefur að geyma 12 svefnherbergi og 24 baðherbergi. Á heimasíðu Realtor má finna nánari upplýsingar og fleiri myndir.
Orðrómur um yfirvofandi skilnað Affleck og Lopez hefur náð nýjum hæðum síðustu daga en hjónin hafa varið miklum tíma í sundur síðustu vikur og mánuði. Affleck sást meðal annars flytja muni sína úr húsinu í byrjun mánaðarins á meðan Lopez naut góðra stunda á Ítalíu ásamt vinum sínum.