Matthías Ingi Sævarsson, yfirmatreiðslumeistari á veitingastöðunum Hjá Jóni á Iceland Parliament hóteli og Konsúlat Wine Room á Reykjavík Konsúlat hóteli, sviptir hulunni af uppskriftinni að uppáhaldshamborgurum móður sinnar sem eru bornir fram með geitaosti, chili-hunangi og fleira góðgæti.

Sumarið er búið að vera annasamt hjá Matthíasi en hann sér um að þróa og hanna matseðlana á báðum veitingastöðunum. „Á veitingastaðnum Hjá Jóni er íslensk matarmenning í hávegum höfð en á Konsúlat Wine Room er áherslan lögð á ljúffenga smárétti sem parast við sérvalin vín. Þessa stundina bjóðum við upp á vín frá Ítalíu og matseðillinn er í takt við þau, þ.e. smáréttirnir eru með ítölsku ívafi,“ segir Matthías.
Þegar kemur að matargerðinni þá hefur Matthías mikla ástríðu fyrir starfinu sínu og elskar fátt meira en að þróa nýja rétti. „Ég hef mikinn áhuga á smáréttum. Að mínu mati eru skemmtilegustu matarboðin þegar boðið er upp á úrval af litlum réttum. Þegar kemur að hamborgurum þá finnst mér skemmtilegast að matreiða smáborgara þar sem ætlast er til að hver og einn gestur fái sér 2-3 borgara. Auðvitað er hægt að útfæra þennan hamborgara bæði sem smáborgara og í stærri útgáfu sem ég ætla að gefa ykkur uppskriftina að. Þessi hamborgari er í miklu uppáhaldi hjá mömmu minni og hef ég lagt mitt fingrafar á hann og gert hann að mínum. Um er að ræða smash-hamborgara með geitaosti, rauðlauks- og rauðrófusultu, stökku beikoni og chili-hunangi. Mér finnst best að nota kartöflubrauð þegar verið er að gera smash-borgara. Gott er að steikja brauðið á sömu pönnu og hamborgararnir voru steiktir á. Vert er að hafa í huga að við val á hakki fyrir smash-borgara er best að nota fituríkt hakk, tilvalið að miða við milli 15-20% fitu,“ segir Matthías og sviptir hér hulunni af uppskriftinni sinni að sínum uppáhalds. Best er að gera fyrst chili-hunangið og rauðlauks- og rauðrófusultuna, matreiða svo hamborgarana og setja þá saman.
Smash-borgarar með geitaosti og chili-hunangi að hætti Matthíasar
Smash-borgarnir
Eldunarleiðbeiningar fyrir smash-borgarana
Chili-hunang
Aðferð:
Rauðlauks- og rauðrófusulta
Aðferð:
Stökkt beikon
Aðferð:
Samsetning á smash-borgaranum